




Kársnesbraut 108
200 Kópavogur
Falleg og vel skipulögð 3 herbergja vinnustofu á 2. hæð (fyrsta hæð frá götu) með sérinngangi. Quartz á borðum í eldhúsi, baðherbergi og sólbekkjum. Gólfhiti í allri eigninni. Innfelld blöndunartæki. Vandaðar innréttingar. Sky Lagoon í göngufæri. ATH. Myndir eru úr sambærilegri þriggja herbergja eign í sama húsi og eru því aðeins til viðmiðunar. Ekki er hægt að fá húsaleigubætur á þessa íbúð þar sem hún er ósamþykkt.
Nánari lýsing: Anddyri er rúmgótt, bjart, með parket á gólfi og góðum fataskáp. Alrými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu með parket á gólfi. Stofa er rúmgóð, gólfsíðir gluggar í anddyri, sólbekkir úr Quartz, innfelld lýsing í kanti og lofti. Eldhús er glæsilegt, sérsmíðuð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, quartz á borðum og innbyggð blöndunartæki. Vönduð tæki sem telja bakaraofn, spansuðuhelluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Þvottahús/geymsla er inn af stofu. Baðherbergi er glæsilegt, flísalagt hólf í gólf, stór spegill með baklýsingu, walk in sturta með inbyggðum blöndunartækjum, stór handsmíðaður Quartz vaskur með innbyggðum blöndunartækjum og vegghengt salerni. Hjónaherbergi rúmgott með góðum skápum, sólbekkir úr Quartz og útgengt út á vestursvalir. Svefnherbergi er gott með fínu skápaplássi.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þvottavél
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Kettir leyfðir
Hundar leyfðir
Mánaðarleiga
330.000 kr
11 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
15 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
330.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 660.000 krInnflutningsverð
990.000 kr
Leigt út af Hafþór Örn Guðjónsson