




Kambsvegur 26
104 Reykjavík
Einstaklega fjölskylduvæn eign í tvíbýli með sérinngangi og með frábæra nágranna í laugardalnum þar sem stutt er í allar áttir.
Íbúðin er 116 m2 með fjórum svefnherbergjum, einu baðherbergi og litlu þvottahúsi/geymslu innaf forstofu. Öll neðri hæðin er til útleigu en á efri hæðinni eru yndislegir barn- og gæludýralausnir nágrannar. Eignin leigist út með húsgögnum og öllum nauðsynlegum heimilistækjum eins og þvottavél, þurrkara, snjallsjónvarpi, rúmum, sófum, stólum, borðbúnaði, kaffivél, garðhúsgögnum, borðbúnaði, listaverkum á veggjum og í raun öllu sem var í íbúðinni þegar flutt var úr henni. Mjög björt eign með glugga í allar áttir, stóran garð og pall í suðurátt. Sérbílastæði fylgir eigninni og þar er auðvelt að leggja fleiri bílum í röð sé þess þörf.
Búið er að taka íbúðina og húsið allt í gegn á síðastliðnum árum og nú síðast var baðherbergið alveg tekið í gegn. Hita- og rafmagnsmælir eru færðir á leigjanda við undirritun leigusamnings. Þriggja mánaða trygging.
Íbúðin er laus 1. september 2026 en ástæða útleigu er að eigendur búa erlendis.
Fylgifé
Ísskápur
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Þvottavél
Þurrkari
Svalir
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
490.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
490.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.470.000 krInnflutningsverð
1.960.000 kr

Leigt út af Sveinn