




Efstasund 83
104 Reykjavík
Rúmgóð og hlýleg 2-3ja herbergja íbúð á jarðhæð í Efstasundi í Laugardalnum til leigu. Íbúðin er 78 fermetrar, opin og björt með stórum gluggum. Laus 1. nóvember, eða eftir samkomulagi.
Hverfið er gott og stutt í þjónustu svo sem bakarí, ísbúð, matvöruverslanir, veitingastaði, sund, ræktina, Laugardalinn o.fl.
Aðgengi: Gengið er inn um sérinngang á norðuhlið hússins.
Eldhús/stofa Rýmið er 14 fm., bjart og rúmgott með gluggum á tvo vegu, gólf er flísalagt og með gólfhita. Amerískur ísskápur, bakarofn, uppþvottavél og helluborð fylgir.
Herbergi 1 /svefnherbergi: Mjög stórt, um 16 fm. með góðum suðurglugga og öðrum litlum glugga til austurs. Góður fataskápur.
Herbergi 2 /svefnherbergi: Mjög rúmgott um 20 fm. og bjart með stórum suðurglugga. Nýlega parketlagt. Líka hægt að nota þetta herbergi sem stofu ef par leigir íbúðina. Góður skápur fyrir framan herbergið.
Baðherbergið er um 4,5 fm, flísalagt með baðkari og sturtu yfir baðinu og opnanlegum glugga.
Geymsla og Gangur: Stór geymsluskápur í holi sem er nýlega parketlagt og einnig tvö aðskilin geymslurými um 2 fm. Sameiginlegt þvottahús með einni annarri íbúð í sér rými á jarðhæð með þvottasnúrum í lofti og góðum opnanlegum gluggum. Sér þvottavél með innbyggðum þurrkara fylgir þessari íbúð.
Leiguverð er 365.000 kr.á mánuði, hússjóður innifalinn, greiðist fyrirfram. Leigutaki greiðir hita og rafmagn skv. mæli og internet. Trygging er 500.000 kr.
Gerður verður leigusamningur til eins árs, með mögulegri framlengingu.
Íbúðin leigist eingöngu fólki sem er á vinnumarkaði og/eða í námi. Hún hentar vel pari, lítilli fjölskyldu eða vinkonum/vinum sem vilja leigja saman. Óskað er eftir reglusömu, skilvísu og rólegu fólki .
Bannað að reykja/veipa í íbúð.
Óskað verður eftir meðmælum áður en gengið verður frá samningi.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Þvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
365.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
365.000 kr
Tryggingarfé
500.000 krInnflutningsverð
865.000 kr
Leigt út af Svala Sigurðardóttir