




Þinghólsbraut 55
200 Kópavogur
Rúmgóð 105,9 m² íbúð með sérinngangi og sjávarútsýni á Þinghólsbraut, Kópavogi
Til leigu björt, rúmgóð og nýlega endurnýjuð 105,9 m² íbúð á 1. hæð í þríbýlishúsi á sjávarlóð við Þinghólsbraut í vesturbæ Kópavogs (200 Kópavogur). Að auki fylgir um 15 m² anddyri með sérinngangi, sem er ekki talið með í skráðum fermetrum.
Húsið er einstaklega rólegt og friðsælt og stendur í grónu og kyrrlátu hverfi þar sem lítil umferð er.
Í íbúðinni eru opið eldhús og borðstofa, rúmgóð stofa, tvö svefnherbergi með sjávarútsýni, baðherbergi með baðkari, þvottahús, gangur og forstofa. Parket á gólfum og góður fataskápur í hjónaherbergi.
Kostir:
- Sérinngangur
- Garðskáli og sólpallur við sérinnganginn
- Sjávarútsýni úr svefnherbergjum
- Frítt bílastæði
- Rólegt og friðsælt hús, aðeins þrjár íbúðir
- Kyrrlátt og gróið hverfi með lítilli umferð
- Stutt niður að sjónum
Leiga: 430.000 kr. á mánuði, auk rafmagns og hita Leigutími: Tímabundinn samningur til 3 eða 6 mánaða eða lengur, eftir samkomulagi Uppsagnarfrestur: Gagnkvæmur 3 mánaða uppsagnarfrestur, nánar tilgreint í leigusamningi skv. húsaleigulögum Laus frá: 1. nóvember 2026 Húsgögn: Geta fylgt samkvæmt samkomulagi Trygging: Bankaábyrgð eða 2 mánuðir fyrirfram, samkvæmt samkomulagi Gæludýr: Ekki leyfð Reykingar: Bannaðar
Áhugasamir sendi eftirfarandi upplýsingar á gunnargylfa123@gmail.com:
- Fullt nafn og kennitala
- Símanúmer og netfang
- Fjöldi í heimili (fullorðnir og börn)
- Atvinna og vinnustaður
- Óskaður leigutími og æskileg dagsetning flutnings
- Hvort óskað er eftir húsgögnum
- Hvort lögð verður fram bankaábyrgð eða greiddir 2 mánuðir fyrirfram
- Meðmæli frá fyrri leigusala (nafn og sími)
- Stutt kynning á umsækjendum
Vinsamlegast athugið að aðeins verður haft samband við þá sem koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Kristinn á sama netfangi. Leigusali: Markaðslausnir Athlon ehf.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þvottavél
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
430.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
430.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 860.000 krInnflutningsverð
1.290.000 kr
Leigt út af Gunnar Kristinn Gylfason