Hjarðarhagi 58
107 Reykjavík
Björt og falleg íbúð á þriðju hæð með miklu útsýni til leigu. Eignin er skráð 91,1 fm þar af 7,7 fm geymsla sem fylgir íbúð. Íbúðin samanstendur af rúmgóðu svefnherbergi, tveimur samliggjandi stofum, eldhúsi og baðherbergi. Íbúðin er með suðursvölum sem fá mikla sól á sólardögum. Snyrtilegt rúmgott sameiginlegt þvottaherbergi er á jarðhæð hússins, ásamt þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Nóg af bílastæðum er við húsið.
Íbúðin er á góðum stað í Vesturbænum þar sem öll almenn þjónusta, skólar, sundlaug, íþróttastarf, kaffihús og verslanir eru í göngufæri ásamt göngustígum Ægisíðu.
Leiga er 310.000 á mánuði og íbúðin er laus til leigu sem fyrst, eftir samkomulagi. Hússjóður og hiti er innifalið, rafmagn og internet ekki innifalið. Einungis traustir og reyklausir leigjendur koma til greina, meðmæli ákjósanleg og gæludýr eru ekki leyfð. Gerð er krafa um tveggja mánaða tryggingu eða bankaábyrgð.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Þvottavél
Þurrkari
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
310.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 júl 2026
Leigutímabil
6 mánuðir
Fyrsti mánuður
310.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 620.000 krInnflutningsverð
930.000 kr
Leigt út af Sigurveig Ankita