




Laufbrekka 3
200 Kópavogur
Til leigu – snyrtileg og nýuppgerð studio-íbúð í Kópavogi
Til leigu er studio íbúð (aukaíbúð) á neðri hæð einbýlishúss að Laufbrekku 3 í Kópavogi. Íbúðin er með sér inngangi framan við húsið og næg bílastæði eru við eignina.
Allt er innifalið í leiguverði: hiti, rafmagn og internet.
Íbúðin samanstendur af opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Í rýminu er svefnsófi, rúm og þrefaldur fataskápur. Á vinstri hönd er lítið og nýlegt eldhús með helluborði, ísskáp, örbylgjuofni og þvottavél.
Baðherbergi er nýlegt og flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, handklæðaofni og þvottavél.
Íbúðin getur leigst með eða án húsgagna eftir samkomulagi.
Hentar vel fyrir einstakling eða par, t.d. námsmenn. Stutt er í alla þjónstu og almenningssamngöngur.
Íbúðin er laus frá byrjun október og leigist til 1. júní 2027, eða mögulega lengur eftir nánara samkomulagi.
Íbúðin hefur verið í Airbnb leigu í sumar, sjá auglýsingu hér: https://www.airbnb.com/rooms/1658964135222862642?guests=1&adults=1&s=67&unique_share_id=1c4e87d7-e5a0-41a3-9d5a-70c70c0715ec
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í einkaskilaboðum fyrir frekari upplýsingar.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
230.000 kr
10 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
8 okt 2026
Leigutímabil
8 - 9 mánuðir
Fyrsti mánuður
230.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 230.000 krInnflutningsverð
460.000 kr
Leigt út af Leifur Þorbergsson