




Laugavegur 168C
105 Reykjavík
Glæný og stórglæsileg 2ja herbergja, 49,5 fm íbúð á jarðhæð. Gengið er inn í anddyri. Á hægri hönd er baðherbergi, 4 fm, með sturtu og tengi fyrir þvottavél og á vinstri hönd er svefnherbergi, 9,3 fm með góðum fataskáp. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 24 fm þar sem gengið er út á 8,4 fm verönd sem snýr til norðurs inn í sameiginlegan garð. Í eldhúsi er falleg og snyrtileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Íbúar hafa aðgang að sameiginlegum þakgarði sem snýr í suður og er að hluta til yfirbyggður.
Geymsla, 6,6 fm fylgir íbúðinni. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 325.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu. Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Nánari upplýsingar al@al.is og https://www.al.is/rent/apartments/
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
325.000 kr
Leigutímabil
36 mánuðir
Fyrsti mánuður
325.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 650.000 krInnflutningsverð
975.000 kr

Leigt út af Alma