




Suðurhólar 28
111 Reykjavík
🏠 43,2 fm íbúð með sérinngangi, sérverönd og garði í 111 Reykjavík
📝 Til leigu vel skipulögð 43,2 fm íbúð á jarðhæð í góðu og vel staðsettu fjölbýlishúsi á Suðurhólum 28 í 111 Reykjavík. Íbúðin er björt og snyrtileg með sérinngangi og garði með palli til suðurs. Frábært tækifæri fyrir einstakling eða par sem vantar íbúð á góðum stað.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og lítið aukarými/svefnkrók sem er skráð sem geymsla en nýtist vel sem svefnpláss eða vinnuaðstaða. Fínar innréttingar og parket/dúkur á gólfum. Eldhús er með ísskáp. Baðherbergi er flísalagt og með sturtu. Sameiginlegt þvottahús með þvottavél.
Aðgangur er að sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu og lítilli sérgeymslu í sameign. Íbúðin er laus frá 1. nóvember eða eftir samkomulagi.
📍 Íbúðin er í göngufjarlægð frá:
- Fjölbrautarskólanum í Breiðholti
- Breiðholtslaug
- Heilsugæslu
- Bónus
- Bakaríum og annarri þjónustu
- Stutt er í strætó og góðar samgöngur í allar áttir
💰 Leiguverð er 275.000 kr á mánuði
- Leigutaki greiðir hita, rafmagn og internet
📑 Skilmálar
- Trygging: 3 mánaða leiga
- Leigutími: Langtímaleiga, 3 mánaða lágmark
- Leiguverð endurskoðað árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs eða samkvæmt samkomulagi
- Gæludýr eru leyfð og velkomin
- Lögheimili: heimilt
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Hámark 3 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
275.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
275.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 825.000 krInnflutningsverð
1.100.000 kr
Leigt út af Óðinn Björn Jakobsson