




Hrauntún 7
760 Breiðdalsvík
-= Sækja þarf um á briet.is =- -= You need to apply at briet.is =-
Til leigu er 4ra herbergja íbúð, 119,8 m² í nýbyggðu parhúsi við Hrauntún 7, Breiðdalsvík.
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskápum á vinstri hönd. Sitt hvoru megin við forstofu eru tvö rúmgóð svefnherbergi, með tvöföldum fataskápum. Úr forstofunni er gengið inn í sjónvarpshol, sem jafnframt er miðrými íbúðarinnar. Þar á vinstri hönd er aðgengi að rúmgóðu baðherbergi með sturtu ("walk in"), upphengdu salerni, handlaug og handklæðaofn. Á hægri hönd í sjónvarpsholi er þvottahús með góðri þvottavélainnréttinu, skolvaski og hitunarbúnaði íbúðarinnar. Hjónaherbergi er rúmgott með þreföldum fataskáp. Geymsla er innan íbúðar milli þvottahúss og hjónaherbergis. Úr sjónvarspholi er gengið inn í stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu með góðri lofthæð. Úr stofunni er aðgengi að bakgarðinum.
Góður andi er í íbúðinni, þar sem sjálfvirk loftræsting er innan hennar. Gólfhiti er í allri eigninni og neysluvatnið er forhitað.
Gæludýrahald er ekki heimilt.
Leigufjárhæð er tengd vísitölu neysluverðs. Rafmagn og hiti er ekki innifalið í leigu.
Leigusamningur er ótímabundinn.
Leggja þarf fram tryggingu sem nemur 2ja mánaða leigu, sem getur verið í formi bankaábyrgðar, tryggingarfé lagt inn á leigusala, leigugreiðslu- og viðskilnaðartrygging sem leigjandi kaupir hjá viðurkenndu tryggingafélagi.
Ekki er hægt að skoða eignina nema af myndum á netinu fyrir úthlutun, sá aðili sem fær íbúðina úthlutað hefur sólarhring til að ákveða sig eftir skoðun á eignini sjálfri.
Öllum umsóknum er svarað eftir úrvinnslu
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
229.000 kr
Laus frá
15 apr 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
229.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 458.000 krInnflutningsverð
687.000 kr
Leigt út af Leigufélagið Bríet