




Þorraholt 17
210 Garðabær
Ný og glæsileg tveggja herbergja íbúð með bílastæði í bílageymslu.
Um er að ræða vel skipulagða 68,7 fm íbúð við Þorraholt 17 í Garðabæ. Íbúðin er staðsett á annari hæð í sjö íbúða snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu og er stutt í alla helstu þjónustu.
Skipulagið er gott: forstofa með fataskáp, björt stofa og eldhús í opnu rými, rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og baðherbergi með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Frá stofu er útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs og njóta fallegs útsýnis í gegnum glerlokun.
Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu ásamt sérgeymslu.
Íbúðin skilast einnig með gardínum og góðri lýsingu sem er ekki á myndum.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr
Leigt út af Sigurjón Gíslason