




Blönduhlíð 31
105 Reykjavík
Til leigu er 82,2 m², 3ja herbergja íbúð í Hlíðunum, á frábærum stað í grónu og notalegu hverfi.
Íbúðin er nýmáluð, björt og með parketi á gólfum. Hún hefur sérinngang og sérgeymslu og býður upp á notalegt heimili á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Staðsetningin er einstaklega góð, en Hlíðaskóli og Menntaskólinn við Hamrahlíð (MH) eru í göngufæri. Einnig er stutt í útivistarsvæði á borð við Klambratún og Öskjuhlíð, auk þess sem miðbær Reykjavíkur er í þægilegri fjarlægð.
Óskað er eftir ábyrgum leigjendum sem ganga vel um. Við leigusamning er farið fram á tryggingu sem nemur eins mánaðar leigu eða bankaábyrgð.
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
8 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 350.000 krInnflutningsverð
700.000 kr
Leigt út af Jóna Lísa Gísladóttir