




Starengi 28
112 Reykjavík
Björt og vel skipulögð 86 m², þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi til leigu í Engjahverfi í Grafarvogi.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp, eitt baðherbergi og sér þvottahús. Eldhús og stofa eru í opnu rými. Svalir snúa í suðaustur, inn í gróinn bakgarð í með leiktækjum fyrir börn.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í sameign og er hún 5 m² að stærð. Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.
Íbúðin hentar vel fólki með börn en stutt er í alla þjónustu og er til að mynda göngufæri í leikskóla, grunnskóla og menntaskóla. Einnig er Spöngin, Egilshöll og Korpúlfsstaðavöllur í göngufjarlægð. Margar fallegar gönguleiðir liggja allt um kring, m.a. meðfram sjónum.
Íbúðin er laus í lok júlí 2026 til langtímaleigu. Verð pr. mán. er kr. 350.000.- en innifalið í leiguverði er hússjóður og hiti. Leigjandi greiðir sjálfur fyrir rafmagn. Leggja þarf fram tveggja mánaða tryggingagjald sem endurgreiðist við lok umsamins leigutíma.
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Fuglar leyfðir
Kettir leyfðir
Hundar leyfðir
Mánaðarleiga
350.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
27 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Guðbjörg