




Laugavegur 51
101 Reykjavík
Glæsileg 165 fm þakíbúð til leigu í hjarta miðborgarinnar. Um er að ræða einstaka íbúð á tveimur efstu hæðum (þriðju og fjórðu hæð) með einstakt útsýni til suðurs og norðurs, mikil lofthæð og stórar suðursvalir. 2 stór bílastæði á baklóð fylgir íbúðinni. Um langtímaleigu er að ræða.
Íbúðin er skráð 152 fm en búið að heimila stækkun uppá 13 fm og verður því íbúðin skráð 165 fm.
Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum gengið er inn á efri hæð íbúðarinnar: Stofan er mjög björt og hátt er til lofts, stórir gluggar til suðurs og norðurs. Úr stofu er gengið út á mjög stórar svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Efri hæðin er að mestu eitt opið og stórt rými og þar rúmast anddyri, stofa, borðstofa og eldhús. Á efri hæðinni er einnig stór skrifstofa, gestasnyrting og gott þvottahús. Á neðri hæðinni eru tvö herbergi, annað mjög stórt með svölum mikið skápapláss. Baðherbergið er mjög rúmgott og flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuaðstöðu. Á gangi neðri hæðar er mjög mikið skápapláss sem nýtist einnig sem geymsla.
Nýlegt fallegt parket er á gólfum neðri hæðar (nema á baðherbergi). Efri hæð er öll flotuð á sjarmerandi hátt, nema baðherbergi og þvottahús (flísar). Gólfhiti í hluta efri hæðar. Sérsmíðaðar innréttingar eru í íbúðinni sem gera hana einstaklega glæsilega.
Fylgifé
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
550.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
550.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 1.100.000 krInnflutningsverð
1.650.000 kr
Leigt út af Hreiðar