




Njálsgata 80
101 Reykjavík
Björt og þægileg fjögurra herbergja íbúð á Njálsgötu til leigu. Íbúðin er 63,3 m² að birtri stærð (gólfflötur þar sem hæð er undir 180 cm er ekki talinn með). Hún er á fjórðu hæð með góðu útsýni og svalir til suðurs. Hluti af eldhúsi og öðru svefnherbergi er undir súð.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, borðstofu sem hægt er að nota sem þriðja svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús með uppþvottavél, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Sameiginleg þvottaaðstaða er í kjallara (pláss fyrir þvottavél og þurrkara) en deilist með þremur öðrum íbúðum.
Frábær miðbæjarstaðsetning, allt er í göngufæri. Verslanir, skólar, veitingastaðir, Hlemmur, Laugavegur og miðbærinn. Mjög góðar almenningssamgöngur.
Möguleiki er á að fá íbúakort fyrir bílastæði á svæðinu svo ekki þurfi að borga í stöðumæli. Íbúðin er í rólegu og þægilegu húsi með góðum og hljóðum nágrönnum. (Ég bjó sjálfur hér áður í nokkur ár)
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Uppþvottavél
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
360.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Hákon Jarl Kristinsson