




Kleppsvegur 126
104 Reykjavík
Mjög skemmtileg og góð 3ja herbergja (2 svefnherbegi) íbúð við Kleppsveg í lágreistri blokk aðeins 6 íbúðir í stigagangi, býðst í langtímaleigu. Góð staðsetning og stutt inn á stofnæðar. Stutt er í alla verslun og þjónustu. Grunnskólar í hverfinu eru Langholtsskóli, Vogaskóli og Laugalækjaskóli. Menntaskólinn við Sund er einnig í næsta nágrenni. Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns eru í göngufæri. Stutt í leikskóla. Auk þess er stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir í Laugardalnum og alla þjónustu þar í kring.
íbúðin er björt með góðri stofu, sem útgengt er út á suðvestursvalir, þar er opið svæði fyrir framan. Tvö rúmgóð herbergi eru í íbúðinni og inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Hitt herbergið er með góðum skápum og snýr í suðvestur. Eldhúsið er með nýlegum ofni, ísskáp og uppþvottavél, pláss fyrir lítið eldhúsborð í eldhúsi. Íbúðinni fylgir rúmgóð geymsla í kjallara með opnanlegum glugga.
Leigu verð á mánuði er 330.000 kr. og leigan fylgir vísitölu neysluverðs. Farið er fram á tveggja mánaðar tryggingu
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
330.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
330.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 660.000 krInnflutningsverð
990.000 kr
Leigt út af Árni Þór Skúlason