




Laugarnesvegur 106
105 Reykjavík
Til leigu er björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi við Laugarnesveg í Laugardalnum. Íbúðin er ný máluð, leigist tóm og er laus til afhendingar strax.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, björt stofa, baðherbergi og eldhús. Úr hjónaherberginu er útgengt á svalir sem snúa út í garð. Í eldhúsinu eru ofn, örbylgjuofn, ísskápur og uppþvottavél. Parket er í stofu og í svefnherbergjum en flísar eru í anddyri, baðherbergi og í eldhúsi.
Íbúðin er á góðum stað í Laugardal með stutt í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru meðal annars verslanir, Laugardalslaug, líkamsrækt (World class Laugar), skólar, leikskólar, fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Grasagarður Reykjavíkur og fallegar göngu- og hjólaleiðir í Laugardalnum. Einnig er stutt í Borgartún, miðborgina og góðar almenningssamgöngur.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
330.000 kr
5 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
330.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 990.000 krInnflutningsverð
1.320.000 kr
Leigt út af Hildigunnur Þórarinsdóttir