




Skyggnisbraut 30
113 Reykjavík
Til leigu falleg og vel skipulögð 3ja herbergja, 92 fm íbúð á 3. hæð við Skyggnisbraut 30 í Úlfarsárdal. Íbúðin er í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi við ósnortna náttúru þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, þjónustu og fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir. Íbúðin er björt og vel skipulögð með tveimur góðum svefnherbergjum, bæði með fataskápum. Björt stofa með stórum gluggum og útgengi út á skjólgóðar og rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni. Einnig er sérgeymsla innan íbúðar. Í sameign er vagna- og hjólageymsla og íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílskýli. Íbúðin er laus frá 1. ágúst 2026 eða jafnvel fyrr samkvæmt samkomulagi. Leiguverð: 335.000 kr. á mánuði. Innifalið í leigu er hiti og hússjóður. Leitað er að traustum og ábyrgum langtímaleigjendum. Reykingar og gæludýr eru ekki leyfð. Óskað er eftir tveggja mánaða tryggingu við upphaf leigutíma. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á svangrund(hjá)svangrund(punktur)is með sem ítarlegastri kynningu á sér, fjölskylduhögum, hverjir muni búa í íbúðinni, upplýsingum um starf eða nám, áætluðum leigutíma og öðru sem þeir telja geta skipt máli. Einnig er æskilegt að fram komi hvort meðmæli frá fyrri leigusala eða öðrum séu tiltæk. Vegna mikils fjölda fyrirspurna verður eingöngu haft samband við þá umsækjendur sem koma til greina.
Fylgifé
Uppþvottavél
Ísskápur
Þvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
335.000 kr
4 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
335.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 670.000 krInnflutningsverð
1.005.000 kr
Leigt út af Guðmundur Gylfi Guðmundsson