




Hraunteigur 5
105 Reykjavík
Íbúð til leigu — Hraunteigur 5, 105 Reykjavík Við erum með fallega íbúð til leigu næsta árið á frábærum stað í Reykjavík. Íbúðin er laus frá 15. ágúst 2026 til 1. ágúst 2027 (eða eftir samkomulagi). Íbúðin er á Hraunteigi 5, í örstuttri göngufjarlægð frá Laugardalslaug. Stutt er í fjölda strætóstoppistöðva, alla helstu þjónustu, útivistarperlur, sundlaugar, heilsurækt og miðbæinn. Um er að ræða 138 fm eign á tveimur hæðum, leigð fullbúin húsgögnum — öll húsgögn, tæki og eldhúsáhöld fylgja, tilbúið til að flytja inn. Neðri hæð: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa í alrými með gegnheilu parketi á gólfi. Eldhús með gaseldavél og háf yfir, tvöföldum ísskáp með klakavél og góðri eldunaraðstöðu. Þá er snyrting með sturtu og þvottaaðstaða með þvottavél og þurrkara. Efri hæð: Sjónvarpsherbergi, notaleg vinnuaðstaða, svefnherbergi og fataherbergi, auk baðherbergis með baðkari, sturtu og gólfhita. (Sjónvarpsherbergið og fataherbergið voru upphaflega svefnherbergi og auðvelt væri að breyta þeim til baka.) Sérbílastæði fylgir íbúðinni ásamt aðgangi að skjólsælum og snyrtilega frágengnum bakgarði með hellulögn, sólpalli, skjólveggjum og garðhúsgögnum. Eldri söluskrá með fjölda mynda má sjá hér: https://fastinn.is/soluskra/1239960 — athugið að skúrarnir aftan við húsið á þeim myndum fylgja ekki með í leigu. Endilega hafið samband ef þetta gæti verið áhugavert — við veitum fúslega nánari upplýsingar og sýnum íbúðina, hvort sem er á staðnum eða í myndsímtali.
Fjármál og skilmálar Laust frá 15. ágúst 2026, fyrir 550.000 ISK á mánuði. Krafist er tryggingar upp á 550.000 ISK. Leigutími er á bilinu 11 til 12 mánuðir. Hiti, rafmagn, internet og húsfélagsgjöld eru innifalin í leigu. Reykingar eru ekki leyfðar og gæludýr eru ekki leyfð. Framleiga er ekki leyfð.
Allar upplýsingar eru taldar áreiðanlegar en ekki tryggðar. Kaupandi/leigjandi skal staðfesta.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
550.000 kr
Laus frá
15 ágú 2026
Leigutímabil
11 mánuðir
Fyrsti mánuður
550.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 1.100.000 krInnflutningsverð
1.650.000 kr
Leigt út af Viðar Hrafn Steingrímsson