




Eskivellir 13
221 Hafnarfjörður
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu okkar www.ivera.is
Stór 3 herbergja íbúð með 28 fermetra verönd Velkomin inn í stílhreint og vel skipulagt 91 fermetra heimili á Eskivöllum, Hafnarfirði. Hentar þeim sem líkar að búa í barnvænu umhverfi og með nóg pláss fyrir alla fjölskylduna. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum ásamt baðherbergi með innangengri sturtu og aðskyldu þvottahúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í meginrými íbúðarinnar er svo opið eldhús og stór stofa sem hægt er að skilja að í borðstofu og setustofu. Út af meginrýminu er svo stór verönd þar sem hægt er að hafa nóg pláss fyrir grillveislur sumarsins eða lokað leiksvæði þar sem börnin geta leikið sér í rólegheitum. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngang og því er leyfilegt að vera með eitt gæludýr í íbúðinni.
Hverfið Vallarhverfið býður uppá barnvænt umhverfi með allri helstu þjónustu innan göngufjarlægðar. Bein gönguleið er í Hraunavallaskóla og því þurfa börnin ekki að ganga yfir umferðaræðar. Tveir leikskólar eru í hverfinu og þar er einnig hægt að finna nýlega Krónuverslun, Bónus og bakarí. Tvær líkamsræktarstöðvar eru í hverfinu ásamt sundlaug. Einnig er stutt í menningarlífið í miðbæ Hafnarfjarðar. Vallarhverfið er tilvalinn staður til að hafa það heimilislegt.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 372.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
372.000 kr
Laus frá
10 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
372.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.116.000 krInnflutningsverð
1.488.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir