




Suðurgata 16
300 Akranes
Inn um sérinngang er gengið inn í forstofu sem er flísalögð með fatahengi bak við hurð og geymslu á hægri hönd. Annar sérinngangur er inn um þvottahús sem nýlega hefur verið tekið í gegn. Inn af forstofu er bjart og parketlagt alrými. Eldhús er á vinstri hönd, gert upp árið 2023. Vintage innrétting með góðu skápaplássi og viðarborðplötu. Helluborð, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Stofan er björt og tvískipt og rúmar vel borðstofu og sjónvarpsrými með útsýni út í garðinn. Baðherbergi var einnig gert upp árið 2023. Flísalagt á gólfi og vatnsálagsrými inn í sturtu, sem er walk-in. Útbúið hvítri vaskinnréttingu með skúffum, baklýstum spegli, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gangur er að svefnherbergisálmu með góðu veggplássi. Hjónaherbergi er bjart, parketlagt og með loftháum fataskáp með speglahurðum. Gluggi út að verönd. Barnaherbergi er bjart og parketlagt. Aukaherbergi er einnig inn af gangi, notast sem skrifstofa/geymsla sem stendur en er með gluggum sem snúa út að bílastæði og gæti vel notast sem barnaherbergi. Sameiginleg geymsla með sérinngangi með glugga út að bílastæði.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Hiti innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
280.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
6 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
280.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 560.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Harpa Ósk Lárusdóttir