




Hlíðarhjalli 61
200 Kópavogur
Björt og falleg tveggja herbergja íbúð á 1. hæð. Hún skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og skólar í næsta göngufæri. Fyrir útivistarfólk er staðsetningin tilvalin, en fallegar göngu- og hjólaleiðir um Fossvog, Kópavogs- og Elliðaárdal tengja íbúabyggðina við náttúruna á dýrmætan hátt.
Hægt er að leiga íbúðina með húsgögnum sé þess óskað. Húsgögn innan íbúðar sem fylgja eru eftirfarandi:
Forstofa: Lítill skenkur, spegill og skóhilla. Stofa: 2x sófar, lítið sófaborð, fataskápur, skrifborð, hringlaga borð og 4x stólar. Svefnherbergi: Rúm og náttborð. Baðherbergi: Þvottavél og þurrkari. Eldhús: Ísskápur, ofn, helluborð, örbylgjuofn, ketill og lítið borð. Svalir.
Um samningsatriði er að ræða hvað varðar dýrahald.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
320.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
320.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 640.000 krInnflutningsverð
960.000 kr
Leigt út af Anton Yuangthong Sakornram