




Klapparberg 31
111 Reykjavík
Einbýlishús í Klapparbergi
Reisulegt og vel skipulagt 236 m2 tveggja hæða einbýlishús á rólegum og eftirsóttum stað í Efra-Breiðholti. Húsið stendur á jaðarlóð við náttúruperlur Elliðaárdalsins og býður upp á einstakt næði og fallegt umhverfi.
Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, borðstofa, stofa og setustofa/sjónvarpsherbergi. Húsið er með tvennum svölum, annars vegar til suðurs og hins vegar til austurs, sem gerir auðvelt að njóta sólar yfir daginn. Auk þess er stór sólpallur í suðurátt með heitum potti. Húsinu fylgir upphitaður bílskúr.
Húsið hefur nýlega verið málað og yfirfarið að innan og utan. Athugið að myndirnar voru teknar áður en þær framkvæmdir fóru fram.
Skipulag
Neðri hæð • Forstofa • Eldhús • Borðstofa • Stofa • Tvö svefnherbergi • Baðherbergi • Þvottahús • Geymsla Útgengi er á stóran sólpall og heitan pott bæði frá borðstofu og aðalinngangi.
Efri hæð • Setustofa/sjónvarpsherbergi með útgengi á suðursvalir • Tvö svefnherbergi • Rúmgott baðherbergi • Gangur með útgengi á austursvalir
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Fiskar leyfðir
Hundar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
560.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
28 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
560.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 1.120.000 krInnflutningsverð
1.680.000 kr
Leigt út af Grímur Atlason