




Hrísmóar 1
210 Garðabær
Björt og falleg þriggja herbergja íbúð til leigu á 3. hæð í Hrísmóum 1 í Garðabæ. Staðsetning íbúðarinn er mjög miðsvæðis í Garðabæjar og nálægt allri helstu þjónustu. Íbúðin snýr til norðausturs með 2 rúmgóðum svölum og útsýni í átt að Esjunni.
Húsið stendur nálægt Garðatorgi og er því stutt í ýmsar verslanir, heilsugæslu, leik-, grunn- og menntaskóla ásamt íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Íbúðin er samtals 93 m2 að stærð, þar er með talin 5 m2 geymsla á fyrstu hæð sem fylgir íbúðinni. Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými. Inn af eldhúsi er búr (geymsla). Baðherbergið er flísalagt með innréttingu, baðkari og stórum skáp. Þvottahús er innan íbúðarinnar með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Við húsið er nóg af bílastæðum og á lóðinni eru rafhleðslustöðvar fyrir íbúa hússsins. Sameiginleg hjólageymsla og lyfta er í sameign.
Leigukjör Íbúðin er laus til afhendingar 1. október (mögulega eitthvað fyrr). Aðeins langtímaleiga kemur til greina. Tveggja mánaða húsaleigutrygging er áskilin. Hiti og hússjóður eru innifalin í leiguverði. Leigjandi greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda fyrirspurn í gegnum MyIgloo með stuttri kynningu á sér, upplýsingum um atvinnu og meðmælum frá fyrri leigusala.
Leitað er að reyklausum, áreiðanlegum og skilvísum leigjanda sem mun ganga vel um íbúðina. Farið verður yfir umsóknir og haft samband við þá umsækjendur sem best uppfylla skilyrðin.
Dýrahald er ekki leyfilegt í húsinu.
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður ekki innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Jóhann Helgi Óskarsson