




Lágaleiti 1
103 Reykjavík
Nýleg 2 herbergja íbúð á fyrstu hæð í Lágaleiti 1, 103 Reykjavík. Eignin er byggð árið 2019 og er 58 fermetrar sem skiptist í íbúð 46 fm og geymslu 12 fm geymslu í sameign. Leigan er 290.000 kr. þar sem hússjóður, hiti og rafmagn er innifalið.
Eignin er tilbúin til leigu frá 1. september. Leitað er eftir leigjanda til minnst 13 mánaða.
Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu. Í eldhúsinu er spanhelluborð, bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stofan er björt með góðu skápaplássi. Útgengt er úr stofu út á svalir sem eru rúmgóðar með svalalokun. Svefnherbergið er staðsett inn af stofu með harðparket á gólfi sem og í stofunni. Á baðherberginu er gólf flísalagt og veggir að hluta. Vaskur með spegil að ofan, upphengt klósett, sturta og handklæðaofn. Í innréttingu baðherbergisins er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Auk sérgeymslu er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt hjólaskýli á lóðinni.
Lágaleiti 1 er frábærlega staðsett þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. T.d. er Kringlan, Búllan og Yndisauki allt í göngufjarlægð.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
290.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
290.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 580.000 krInnflutningsverð
870.000 kr
Leigt út af Sigurður Steinar Björnsson