




Tómasarhagi 42
107 Reykjavík
Lítil stúdíóíbúð í innréttuðum bílskúr við Tómasarhaga 42, 107 Reykjavík, er laus til langtímaleigu. Hellulagður stígur liggur að stúdíóíbúðinni sem er 30 m2 með tveimur gluggum. Gengið er inn í íbúðina gegnum forstofu þar sem aðgangur er að flísalögðu baðherbergi með sturtu og þvottavél. Einnig er innréttaður sérstakur eldhúskrókur með vaski, eldavél, ofni og ísskápi. Íbúðinni fylgir aðgangur að garði. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, matvöruverslun, sundlaug og kaffihús. Háskóli Íslands (VRII) er í rúm 500 metra fjarlægð, Vísindagarðarnir í Vatnsmýrinni eru í um km fjarlægð og um tveir km í miðbæ Reykjavíkur. Auk þess eru fallegar gönguleiðir meðfram Ægisíðunni og strandlengjunni við Skerjafjörð í 50 metra fjarlægð.
Leiga á mánuði er 190þ krónur, hiti, rafmagn og internet er innifalið. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu. Stúdíóíbúðin leigist án húsgagna.
Fylgifé
Ísskápur
Þvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
190.000 kr
17 umsóknir hafa verið sendar
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
190.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 380.000 krInnflutningsverð
570.000 kr
Leigt út af Einar Geirsson