




Bláhamrar 4
112 Reykjavík
Rúmgóð og björt 2ja herbergja, 76,1 fm íbúð til langtímaleigu, vel staðsett með fallegu útsýni til suðurs. Laus strax.
Íbúðin er á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Hún skiptist í eitt svefnherbergi, rúmgóða og bjarta stofu, eldhús, baðherbergi, hol og forstofu. Suðursvalir eru út frá stofu og fallegt, opið útsýni er frá bæði stofu og svefnherbergi.
Ljóst parket er á gólfum íbúðarinnar, að undanskildu baðherbergi og forstofu. Baðherbergið er flísalagt og búið sturtu, tengi fyrir þvottavél og handklæðaofni. Gott skápapláss er í svefnherbergi og holi.
Eldhúsið er vel búið með ísskáp, frysti, eldavél, ofni, háfi og uppþvottavél.
Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla með hillum á jarðhæð. Þar er einnig sameiginlegt þvottahús með góðri þvottavél og þurrkara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Stækkanlegt borðstofuborð og stólar, skenkur og sófi geta fylgt íbúðinni sé þess óskað.
Staðsetningin er góð, í göngufæri við leik- og grunnskóla og stutt er í þjónustu og almenningssamgöngur.
Reykingar eru ekki leyfðar í íbúðinni.
Leiguverð er 315.000 kr. á mánuði og er vísitölutengt. Leiga er greidd fyrirfram og óskað er eftir tryggingu sem nemur tveggja mánaða leigu.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Ísskápur
Uppþvottavél
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
315.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
315.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 630.000 krInnflutningsverð
945.000 kr
Leigt út af Hugrún Gyða Þorsteinsdóttir