




Mánatún 1
105 Reykjavík
Björt og frábærlega staðsett, fullbúin íbúð til leigu frá miðjum nóvember og út júní.
Frábær staðsetning: Krónan, bakarí, apótek, mathöll og veitingastaðir eru í 2-3 mínútna göngufjarlægð auk Borgartúns og miðbær Reykjavíkur og Laugardalslaug eru í 15 mínútna göngufjarlægð. Þrír leikvellir fyrir börn eru innan eða rétt utan lóðarmarka hússins.
Íbúðin er í friðsælli blokk, á 2. hæð með lyftu. Í henni eru:
- Tvö svefnherbergi (eitt með hjónarúmi og annað með 120cm rúmi)
- Eitt baðherbergi
- Þvottahús með þvottavél og þurrkara
- Opið eldhús og stofa
- Svalir. Einkabílastæði í kjallara fylgir íbúðinni (ekki með hleðslustöð) Geymsla fylgir ekki íbúðinni.
Íbúðin er kjörin til dæmis fyrir fjölskyldufólk og aðila sem starfa á svæðinu, svo sem í Borgartúni. Nákvæmar dagsetningar eru umsemjanlegar. Íbúðin er fullbúin með húsgögnum, heimilistækjum og innbúi. Innifalið í leigu er hiti, rafmagn og net. Aðilar sem reykja koma ekki til greina og ekki má vera með gæludýr í íbúðinni (ekki heldur í stuttri heimsókn, vegna ofnæmis). Við biðjum þau sem hafa áhuga að senda okkur upplýsingar um sig, staðfestingu á atvinnu, og sakavottorð, auk meðmæla frá fyrrum leigusala.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
450.000 kr
Laus frá
16 nóv 2026
Leigutímabil
7 - 8 mánuðir
Fyrsti mánuður
450.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 900.000 krInnflutningsverð
1.350.000 kr
Leigt út af Esther Hallsdóttir