




Bríetartún 18
105 Reykjavík
Til leigu er notaleg og vel staðsett 2ja herbergja íbúð við Bríetartún 18, 105 Reykjavík. Íbúðin er um 49 fm, á 2. hæð, og hentar vel fyrir einstakling eða par.
Íbúðin er á frábærum stað rétt við Hlemm, Laugaveg, veitingastaði, kaffihús, verslanir og almenningssamgöngur. Stutt er í alla helstu þjónustu og miðbær Reykjavíkur er í göngufæri.
Íbúðin skiptist í svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi með sturtu. Hún leigist með helstu húsgögnum og heimilistækjum. Í svefnherbergi er stórt 180 cm rúm.
Leiguverð: 335.000 kr. á mánuði Innifalið: hiti, rafmagn, hússjóður. Leigutími: langtímaleiga, helst 6-12 mánuðir í senn með mögulegri framlengingu Trygging: samkvæmt samkomulagi, helst 2–3 mánaða trygging/bankaábyrgð Gæludýr: ekki leyfð Reykingar: ekki leyfðar Hámarksfjöldi: 1–2 einstaklingar
Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum leigjanda/leigjendum sem fara vel um eignina. Umsækjendur eru beðnir um að senda stutta kynningu með upplýsingum um hverjir munu búa í íbúðinni, atvinnu/nám, óskaleigutíma, mögulegan afhendingardag og meðmæli ef þau eru til staðar.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
335.000 kr
Laus frá
15 sep 2026
Leigutímabil
6 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
335.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 670.000 krInnflutningsverð
1.005.000 kr
Leigt út af Pálmi Viðar Pétursson