




Laugavegur 139
101 Reykjavík
Björt og vel innréttuð 60 fm íbúð á 2.hæð með húsgögnum á Laugavegi 139 Verð 315.000 allt innifalið.
Helstu atriði • 60 fm íbúð með einu svefnherbergi og svefnsófa í stofu • 2.hæð • Leigð með húsgögnum • Björt og rúmgóð stofa og borðstofa • Opið og notalegt eldhús með bar • Parket á gólfum • Flísalagt baðherbergi • Fallegur garður í portinu við húsið • Mjög góð staðsetning í miðbæ Reykjavíkur • Verslanir, veitingastaðir, kaffihús og þjónusta í göngufæri • Sameiginleg bílastæði fyrir íbúa • Sameiginlegt þvottahús í kjallara með þvottavél og þurrkara • Leiguverð: 315.000 kr. á mánuði með öllu ( rafmagni, hita, hússjóði og interneti) • Trygging: 2ja mánaða leiga
Falleg og björt 60 fm íbúð á 2. hæð að Laugavegi 139, leigð fullbúin með húsgögnum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð, opið á milli borðstofu, eldhúss og setustofu, sem er með svefnsófa. Húsgögn og innréttingar skapa hlýlegt og heimilislegt yfirbragð og fylgja húsgögnin eins og þau eru á myndum. Parket er á gólfum íbúðarinnar, að undanskildu baðherbergi. Í stofunni er þægilegt setusvæði og rúmgott borðstofurými, vel búið eldhús með eldhúsbar og barstólum. Frábær staðsetning í miðbænum Staðsetningin frábær. Hún er í hjarta Reykjavíkur, í göngufæri við fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa, verslana, Sundhöllina og allrar helstu þjónustu. Þrátt fyrir staðsetningu er íbúðin ekki beint í skarkala borgarinnar og býður því upp á skemmtilega blöndu af miðbæjarlífi og rólegu heimilislífi. Fyrir aftan húsið er fallegur garður sem íbúar geta notið. Með húsinu fylgja bílastæði sem íbúar deila sín á milli.
Fylgifé
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Þvottavél
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
315.000 kr
10 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
315.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 630.000 krInnflutningsverð
945.000 kr
Leigt út af Guðni Dagur Kristjánsson