




Gunnarsbraut 43
105 Reykjavík
Stúdíóíbúð á jarðhæð með sérinngangi í Norðurmýrinni í 105 Reykjavík. Staðsett mitt á milli Klambratúns og miðbæjarins.
Eignin er 24,8 fm. og skiptist í alrými með eldhúskrók og baðherbergi.
Alrými: Parket á gólfi. Niðurfellanlegt borð á vegg fyrir barstóla. 160cm rúm og veggföst náttborð fylgja. Sjónvarp á vegg sem hægt er að draga út. Þráðlaust net fylgir eigninni. Hægt er að ganga út í garð hjá svefnrýminu. Eldhúskrókur: Nýleg IKEA innrétting, innbyggður ísskápur, bakaraofn, spanhelluborð með tveimur hellum og innfelldri viftu. Rúmgóðir efri skápar. Baðherbergi: Flísalagt, einföld innrétting, klósett og sturtuklefi. Gólfhiti er í allri eigninni.
Aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi. Hægt að semja um að þvottavél fylgi. Geymsla fylgir ekki.
Athugið að eignin er aðeins leigð tímabilið 1. nóvember 2026 - 31. júlí 2027.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 1 leigutaki
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
200.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
9 mánuðir
Fyrsti mánuður
200.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 200.000 krInnflutningsverð
400.000 kr
Leigt út af Baldur Karl