




Kuggavogur 19
104 Reykjavík
Glæsileg 3ja herbergja íbúð til leigu í Nýju Vogabyggð (104 Rvk)
Um er að ræða nýlega og bjarta 99,8 fm íbúð á 1. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi. Íbúðin er með aukinni lofthæð, rúmgóðri stofu, eyju í opnu eldhúsrými, opnanlegum svölum, tveimur stórum svefnherbergjum og snyrtilegu baðherbergi.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.
Helstu upplýsingar:
- Afhending: Laus frá 7. september næstkomandi.
- Leigutími: Tímabundinn samningur til 6 mánaða til reynslu með möguleika á langtímaleigu eftir það.
- Leiguverð: 390.000 kr. á mánuði. Hiti, rafmagn og hússjóður innifalinn. (Verð er fast fyrstu 6 mánuðina en vísitölutengist við framlengingu í langtímaleigu).
- Trygging: Tveir mánuðir í formi tryggingagreiðslu eða bankaábyrgðar.
- Bætur: Hægt er að þinglýsa samningi og sækja um húsnæðisbætur.
- Húsgögn: Íbúðin leigist að hluta til með húsgögnum (eða skv. nánara samkomulag).
- Geymsla: Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Kröfur og reglur: Leitað er að reglusömum og ábyrgum leigjendum. Farið er fram á meðmæli. Íbúðin er reyklaus og stór gæludýr eru ekki leyfð.
Staðsetning: Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu. Holtagarðar, Húsasmiðjan og Bónus eru í þægilegri göngufjarlægð.
Bókaðu skoðun til að upplifa þessa eign.
— Allar upplýsingar teljast áreiðanlegar en eru ekki tryggðar. Kaupandi/leigjandi skal staðfesta.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Örbylgjuofn
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
7 sep 2026
Leigutímabil
6 - 36 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 780.000 krInnflutningsverð
1.170.000 kr
Leigt út af Eva María