




Markland 12
108 Reykjavík
Björt 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í Fossvogi
96 m², 4ra herbergja íbúð til leigu á 3. og efstu hæð í rólegu og grónu hverfi í Fossvogi. Laus frá 1. október.
Íbúðin er björt og að miklu leyti nýuppgerð. Hún skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu og þvottavél. Eldhús og stofa snúa í suður og þaðan er gengið út á um 7 m² suðursvalir með mikilli sól.
Í eldhúsi eru innbyggður ísskápur/frystir, bakaraofn og uppþvottavél.
Í kjallara fylgir um 6 m² sérgeymsla. Þar er einnig sameiginlegt þvottarými og önnur þvottavél með þurrkara sem fylgir íbúðinni.
Íbúðin leigist án húsgagna, en möguleiki er á að einhver húsgögn fylgi eftir samkomulagi.
Stutt er í leikvelli, gönguleiðir, græn svæði og almenningssamgöngur.
Leiga: 390.000 kr. á mánuði Hiti og hússjóður innifalinn. Rafmagn og internet greiðist af leigutaka.
12 mánaða leigusamningur með möguleika á framlengingu og 3 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti.
Trygging er tveggja mánaða húsaleiguábyrgð í gegnum Leiguskjól.
Reyklaust heimili. Gæludýr geta komið til greina eftir samkomulagi. Meðmæli frá fyrri leigusala eru vel þegin.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 780.000 krInnflutningsverð
1.170.000 kr
Leigt út af Rafn Erlingsson