




Nýbýlavegur 10B
200 Kópavogur
Rúmgóð 94,2 m² íbúð með tveimur svefnherbergjum og yfirbyggðum svölum í Kópavogi
Til leigu er rúmgóð og vel staðsett 94,2 m² íbúð á fjórðu hæð við Nýbýlaveg 10B, 200 Kópavogi. Íbúðin er laus til bæði langtímaleigu og skammtímaleigu eftir samkomulagi.
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og stóru baðherbergi með þvottaaðstöðu. Yfirbyggðar svalir með opnanlegri svalalokun bjóða upp á notalegt aukarými og fallegt útsýni. Svalirnar eru utan skráðrar fermetratölu.
Verslanir, veitingastaðir, kaffihús, bakarí og apótek eru í næsta nágrenni. Stutt er í útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn.
Eftirfarandi heimilistæki fylgja íbúðinni:
- Ísskápur
- Uppþvottavél
- Örbylgjuofn
- Þvottavél
- Þurrkari
Íbúðinni fylgir einnig stæði í bílageymslu með hleðslustöð. Íbúðin er fullbúin húsgögnum og hægt er að leigja hana með þeim eftir samkomulagi.
Leiguskilmálar
- Mánaðarleiga er 375.000 kr.
- Trygging nemur þriggja mánaða leigu.
- Leiga fyrsta mánaðar greiðist fyrirfram.
- Leigutími er eftir samkomulagi, bæði til lengri og skemmri tíma.
- Leigjandi greiðir fyrir rafmagn, hita og internet.
- Gæludýr eru leyfð eftir samkomulagi.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður ekki innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
375.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
375.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.125.000 krInnflutningsverð
1.500.000 kr
Leigt út af Jakob Ágústsson