




Háaleitisbraut 121
108 Reykjavík
Til leigu er björt og falleg 106 m² fjögurra herbergja íbúð á Háaleitisbraut. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð að hluta og er nýmáluð, með glænýju parketi og nýjum hurðum. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús og baðherbergi. Í eldhúsi er uppþvottavél ásamt glænýjum ísskáp. Kemur með nýrri lýsingu í öllum rýmum.
Úr íbúðinni er gengið út á rúmgóðar suðursvalir sem snúa út í gróinn garð með leiksvæði fyrir börn – notalegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Eigninni fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara. Í sameiginlegu þvottahúsi er sérstakt stæði fyrir íbúðina þar sem hægt er að koma fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í Kringluna, verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, almenningssamgöngur og aðra helstu þjónustu.
Íbúðin hentar vel fjölskyldu eða öðrum sem leita að rúmgóðu og snyrtilegu langtímahúsnæði á góðum stað í Reykjavík.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Ísskápur
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
355.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
10 Oct 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
355.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 710.000 krInnflutningsverð
1.065.000 kr
Leigt út af Lára Herborg Ólafsdóttir