




Álftröð 7
200 Kópavogur
Um er að ræða einstaklega vel hannaða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegri blokk í 200 Kópavogi. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi og alrými. Úr íbúðinni er útgengt á sérafnotareit um sérútgang. Bílastæði og geymsla í kjallara fylgir íbúðinni. Í sameign er að finna rúmgóða læsta hjólageymslu. Eignin leigist án húsgagna. Rúmgóður fataskápur er í svefnherberginu, ásamt minni fataskáp í andyri íbúðarinnar. Eldhúsinnrétting er fullbúin með uppþvottavél, ísskápi, ofni og spanhelluborði frá AEG. Hægt er að tengja þvottavél inná baðherbergi. Húsið er svansvottað, og er því hljóðvist og náttúrulegt ljósmagn íbúðarinnar í fremsta flokki. Stutt er í alla helstu þjónustu, en eignin er staðsett við hliðina á bæði Menntaskólanum í Kópavogi og Kópavogsskóla. Stutt er í Hamraborg og því einstaklega þægilegt að notast við almenningssamgöngur. Hægt er að nálgast upplýsingar um blokkina í heild sinni, þar á meðal skilalýsingu og grunnmyndir á vefsíðunni https://digranes.is/
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
290.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
2 Dec 2026
Leigutímabil
12 - 16 mánuðir
Fyrsti mánuður
290.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 870.000 krInnflutningsverð
1.160.000 kr
Leigt út af Bjarki Daníel