




Arkarvogur 8
104 Reykjavík
Rúmgóð útsýnis íbúð með bílastæði í bílakjallara, hverfi 104. Til leigu frá og með 1. desember.
Íbúðin er í nýlegri byggingu að Arkarvogi 8. Hún er 3ja herbergja á fjórðu hæð. Forstofa með stórum forstofuskáp. Eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu með eyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Björt stofa þar sem gengið er út á svalir sem snúa til suðurs. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum. Sjónvarpshol. Baðherbergi með walk in sturtu, hvítri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar með bekk og hillum. Á gólfum er parket en flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Innbyggð lýsing og kubbaljós í allri íbúðinni. Geymsla í sameign. Lyftuhús og stæði í lokuðu bílastæðahúsi með hleðslustöð. Íbúðinni fylgja myrkvunar- og screengardínur.
Leigugjald: 395.000 á mánuði. Leigutaki greiðir fyrir rafmagn íbúðarinnar. Trygging í formi bankaábyrgðar eða reiðufjár sem nemur tveggja mánaða leigu.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda fyrirspurn í gegnum MyIgloo með stuttri kynningu á sér, upplýsingum um atvinnu og meðmælum frá fyrri leigusala.
Leigutími: Ótímabundinn með 3 mánaða uppsagnarfresti.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Olga Friðriksdóttir