




Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
*Íbúð leigist á 420 þúsund krónur án geymslu **Hægt er að leigja geymsluna með íbúðinni á samtals 450 þúsund krónur
Lýsing eignar: Forstofa/hol: Harðparket á gólfi og góður fataskápur. Gangur: Harðparket á gólfi. Fata- og skóskápar. Stofa/borðstofa: Björt með stórum gólfsíðum gluggum með nýlegum vönduðum sérsniðnum gardínum frá Z-brautum. Útgengt á stórar svalir sem snúa til austurs með fallegu útsýni. Eldhús: Með harðparketi á gólfi og hvítri stílhreinni eldhúsinnréttingu með eyju. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði, bakaraofni og eyjuháfi. Opnanlegur gluggi er í eldhúsi. Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum og harðparketi á gólfi. Útgengt á svalir. Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og skápum. Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og skápum. Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi og skápum. Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga. Flísar á gólfi og hluta veggja (60x60). Rúmgóð flísalögð sturta. Góðar innréttingar. Baðherbergið með gólfhita, handklæðaofni og upphengdu salerni. Þvottahús: Er staðsett inn af baðherbergi. Sérgeymsla: Sérgeymsla er í sameign í kjallara hússins. Sameign: Vagna og hjólageymsla er í kjallara hússins. Bílastæði: Húsfélagið hefur sett upp 8 stæði fyrir rafmagnshleðslur. Bílastæðin eru sameiginleg. Fjögur stæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið.
Staðsetning og þjónusta: Stutt í skóla, leikskóla og þjónustu. Nýr leikskóli í næstu götu. Verið er að byggja nýjan skóla í næstu götu. Skarðshlíðarskóli og leikskóli eu í 10 mínútna gönguleið frá. Hraunvallaskóli og leikskóli eru í 5 mín akstri frá. Góðar gönguleiðir og frábær útivistarsvæði eru í næsta nágrenni, m.a. Hvaleyrarvatn, Ásfjall og Ástjörn. Stutt er í verslanir og aðra þjónustu.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
4 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
3 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.260.000 krInnflutningsverð
1.680.000 kr
Leigt út af Dagmar Silja Kristjönu Svavarsdóttir