




Baughamar 5
221 Hafnarfjörður
Til leigu ný glæsileg 92,1 m², 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Baughamar 5 í Hamranesi, Hafnarfirði. Íbúðin er í nýju Svans vottuðu húsi, er björt og vel skipulögð og hentar einstaklega vel pari, lítilli fjölskyldu eða einstaklingum sem vilja vandað og nútímalegt heimili.
Íbúðin samanstendur af tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, björtu alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi og sér þvottahúsi. Fataskápar eru í forstofu og báðum svefnherbergjum.
Eldhúsið er fullbúið með spanhellum, ofni, innbyggðum ísskáp/frysti og uppþvottavél. Baðherbergið er flísalagt og með stórri walk-in sturtu. Úr stofu er gengið út á góðar svalir sem njóta sólar stærstan hluta dagsins.
Með íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara sem er vel staðsett nálægt lyftu, stigagangi og geymslum, 4 m² geymsla fylgir íbúðinni. Húsið er með lyftu.
Staðsetning og nærumhverfi: Stutt er í alla þjónustu s.s matvöruverslanir og íþróttaaðstöðu. Skólar og leikskólar eru einnig í nágrenninu.
Leiguverð: 395.000 kr. á mánuði. (hússjóður og hiti innifalinn) Leigjandi greiðir rafmagn og internet
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
8 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Tumi Þorvarsson