




Flétturimi 32
112 Reykjavík
Rúmgóð og falleg 3ja herbergja íbúð – Flétturimi 32
Laus strax
Til leigu er björt og vel skipulögð 98,2 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott eldhús með góðu vinnuplássi og ofni, bjarta stofu, tvö svefnherbergi (stórt og fallegt hjónaherbergi og barnaherbergi), nýlega uppgert og glæsilegt baðherbergi og þvottahús. Íbúðin er ný máluð. Geymsla fylgir einnig með.
Um er að ræða fjölskylduvæna íbúð á góðum stað í Grafarvogi og stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla ásamt því að vera nálægt verslunar og þjónustukjarna Spönginni.
Andyri rúmgott með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Alrými (stofa/borðstofa) mjög rúmgott sem er opið inn í eldhús. Stofan með glugga í vestur með fallegu útsýni, einnig er þaðan gengið út á rúmgóðar svalir. Í alrými er parket á gólfi. Eldhús með flísum á gólfi, innrétting með efri og neðri skápum í viðarlit. Ofn í vinnuhæð. Uppþvottavél. Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Parket á gólfi. Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi. Baðherbergi flísalagt með fallegum ljósum flísum, baðkar með sturtu.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi. Geymsla á jarðhæð inn af hjóla og vagnageymslu.
Verð: 360.000kr Rafmagn er greitt sér. Hiti er innifalinn Gerður er 6 mánaða samningur sem verður framlengdur ef allt gengur vel. Laus strax Hægt að hafa samband á fletturimi32@gmail.com
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Rósalind Óskarsdóttir