




Esjugrund 13
116 Reykjavík
Fullbúin tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í Grundarhverfi á Kjalarnesi, rólegu þorpi undir Esjunni. Um 20–30 mínútna akstur er til Reykjavíkur. Strætó stoppar í hverfinu og gatan er malbikuð og rudd á veturna.
Laus 1. janúar 2027, tímabundin leiga til 31. maí 2027. Lengri leigutími mögulegur eftir samkomulagi.
Leiga 260.000 kr. á mánuði, allt innifalið: hiti, rafmagn og internet, bæði þráðlaust og með netsnúru, á sérneti fyrir íbúðina.
Í íbúðinni:
- Sérforstofa með snögum fyrir yfirhafnir, skógeymslu og hillum
- Stofa og eldhús í einu rými, með svefnsófa með hirslu og 4K Samsung-snjallsjónvarpi
- Fullbúið eldhús: eldavél, bökunarofn, örbylgjuofn með grilli, góð kaffivél og ísskápur með frysti í fullri stærð, ásamt borðbúnaði og eldhúsáhöldum
- Sérbaðherbergi með sturtuklefa og gólfhita, þvottavél og þurrkgrind
- Sérsvefnherbergi með queen-rúmi, fataskáp og góðu geymsluplássi
- Dimmanleg lýsing og myrkvunargardínur í svefnherbergi
- Loftgeymsla í boði
- Bílastæði við húsið. Hleðsla fyrir rafbíl í boði (ekki innifalin í leigu)
Í hverfinu: 5 mínútna ganga á ströndina með útsýni yfir Kollafjörð til Reykjavíkur, sundlaug, göngustígar, frisbígolfvöllur og hestar. Leigusalar búa á sömu lóð og eru innan handar.
Húsreglur: Að hámarki 2 fullorðnir og 1 barn. Köttur eða lítill hundur leyfður. Reykingar bannaðar, bæði inni og alls staðar á lóðinni.
Skilríki og meðmæli, t.d. frá fyrri leigusala eða vinnuveitanda á Íslandi, eru vel þegin. Hentar líka sem starfsmannaíbúð fyrir fyrirtæki og þá nægir vinnuveitandi sem meðmælandi.
Trygging: eins mánaðar leiga eða leiguábyrgð í gegnum Igloo.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Geymsla
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
260.000 kr
Laus frá
1 jan 2027
Leigutímabil
4 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
260.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 260.000 krInnflutningsverð
520.000 kr
Leigt út af Ryan Patrekur Kevinsson