




Stigahlíð 6
105 Reykjavík
Falleg, bjarta og vel hönnuð 83,7fm, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð að Stigahlíð 6, 105 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, hol, rúmgóða og bjarta stofu með útgengi út á suður svalir, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með innbyggðu baðkari og sturtublöndutækjum, eldhús með nýlegri innréttingu og sérgeymslu í sameign í kjallara. Í stigaganginum eru 8 íbúðir, 2 á hverjum palli. Húsið hefur fengið gott viðhald hins síðustu ár, þar má telja að allir gluggar hafa verið endurnýjaðir, þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör. Þá hefur frárennlislagnir undir húsi verið fóðraðar og brunnar endurnýjaðir. Frábær staðsetning miðsvæðis, þar sem stutt er í Kringluna, verslunarkjarna Suðurvers, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og í göngufæri við háskóla, Öskjuhlíðina, Klambratún o.fl.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Nánari lýsing: Forstofa / herbergjagangur: Innbyggt fatahengi. Tengir saman flest rými íbúðar. Stofa: Stofan og borðstofa í opnu rúmgóðu rými þar sem útgengt er út á skjólgóðar suðursvalir. Svefnherbergi I: Innaf stofu, rúmgott. Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Baðkar með sturtu og glerskilrúmi, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting með neðri skúffum, vask ofan á og efri speglaskáp. Flísar á gólfi og hluta veggja. Eldhús: Innrétting endurnýjuð fyrir 8-10 árum. Gott skápa og vinnupláss. Innbyggður bakaraofn, helluborð og háfur í innréttingu. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp. Svefnherbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi. Geymsla: Sérgeymsla í kjallara í sameign.
Gólfefni: Linoleum dúkur er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi og forstofu þar sem eru flísar.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla í kjallara stigagangsins. Stór skjólgóður og tyrfður garður fyrir aftan hús. Bílastæði: Sameiginleg bílastæði á bílaplani fyrir framan hús
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 680.000 krInnflutningsverð
1.020.000 kr
Leigt út af Hreiðar Levy Guðmundsson