




Fálkagata 24A
107 Reykjavík
Til leigu: Björt og sjarmerandi íbúð á Fálkagötu 24a, 107 Reykjavík 2 herbergi · 57 m² · 2. hæð · Laus strax Til leigu er björt og heillandi tveggja herbergja íbúð í fallegu húsi í Vesturbænum. Háskóli Íslands er í göngufæri og stutt er í miðbæinn. Íbúðin hentar vel fyrir námsfólk, einstakling eða par. Um íbúðina Stofa og eldhús eru eitt opið og mjög bjart rými. Stórir gluggar snúa í suður út að Fálkagötu og hleypa mikilli birtu inn. Eldhús með innréttingu í stáláferð, viðarborðplötu og keramikhelluborði. Svefnherbergið er rúmgott og rólegt. Það snýr að bakgarðinum. Baðherbergið var endurnýjað 2025–2026 og er með baðkari. Hol með glugga. Sérgeymsla á stigapallinum á sömu hæð. Viðarparket á stofu og holi, flísar við eldhúsinnréttingu. Húsið og sameignin Aðeins fjórar íbúðir í húsinu, ein á hverri hæð. Þar er rólegt og gott andrúmsloft. Fallegt stigahús sem heldur upprunalegum einkennum, meðal annars timburhandriði. Sameiginlegt þvottahús. Sólríkur og skemmtilegur bakgarður sem gott er að njóta á sumrin. Húsinu hefur verið vel við haldið. Nýtt þak var sett 2023, rafmagnstaflan var endurnýjuð 2026 og nýr þrýstijafnari settur upp sama ár. Staðsetning Staðsetningin er frábær. Í göngufæri eru: Melabúðin, um 6 mín. Strætóstoppistöð, um 3 mín. Háskóli Íslands, leikskóli og grunnskóli. Líkamsrækt, Vesturbæjarlaug, kaffihús og veitingastaðir. Miðbær Reykjavíkur og útivistarsvæði eins og Ægisíða og Hljómskálagarðurinn eru líka stutt frá. Leiguskilmálar Leiguverð: 320.000 kr. á mánuði Innifalið: hússjóður, vatn Tryggingafé: 3 mánaða bankaábyrgð Leigutími: 12-36 mánuðir Húsgögn: án húsgagna Gæludýr: leyfð Reykingar ekki leyfðar! Laus frá: 01/12/26 Nánari upplýsingar og skoðun: Óðinn Freyr Baldursson · 8232916 · odinnfreyrb@gmail.com
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
320.000 kr
Leigutímabil
12 - 36 mánuðir
Fyrsti mánuður
320.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 960.000 krInnflutningsverð
1.280.000 kr
Leigt út af Óðinn Freyr Baldursson