




Úugata 22
270 Mosfellsbær
Til leigu efri hæð í nýju raðhúsi að Úugötu 22 í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ, ásamt innbyggðum bílskúr. Húsið var byggt 2025. Íbúðarrýmið er um 143 m² og bílskúrinn 33 m².
Á efri hæð eru eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, annað svefnherbergi, herbergi/sjónvarpshol og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt. Inngangur er um anddyri á jarðhæð og þaðan upp stiga. Geymsla á jarðhæð fylgir.
Innréttingar eru frá HTH og tæki frá AEG. Í eldhúsi eru eyja, innbyggður ísskápur og frystiskápur og innbyggð uppþvottavél. Vínylparket er á gólfum, flísar í votrýmum og gólfhiti. Þvottaaðstaða er í bílskúr.
Jarðhæð hússins er leigð út sér.
Leiga er 530.000 kr. á mánuði og eru hiti og rafmagn innifalin. Trygging er þriggja mánaða leiga eða bankaábyrgð. Lágmarksleigutími er 12 mánuðir. Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð. Laus strax.
Stutt er í Helgafellsskóla, almenningssamgöngur og útivistarsvæði.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
530.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
28 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
530.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.590.000 krInnflutningsverð
2.120.000 kr
Leigt út af Guðbjörn Jón Pálsson