




Austurhólar 6
800 Selfoss
Til leigu nýleg þriggja herbergja 111,3 fm útsýnisíbúð við Austurhóla 6 á Selfossi. Íbúðin er á fimmtu og efstu hæð með sér inngangi af svölum og stórum svölum í vestur. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, stórt alrými eldhúss og stofu ásamt sjónvarpsholi. Íbúðinni fylgir innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Sér geymsla innan íbúðar og tengi fyrir þvottavél og þurrkara inni á baði. Aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Laus frá 1. desember 2026.
Eignin skiptist í forstofu, gang, Tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, geymslu, eldhús og stofu í opnu rými. Svalir út frá stofu í vestur.
Íbúðin er í nýju ört vaxandi hverfi sem er að byggjast upp í austurhluta Selfoss bæjar, leikskóli og skóli er í grenndinni ásamt íþróttasvæði Selfoss.
Langtímaleiga. Hiti og hússjóður innifalinn. Rafmagn greiðist af leigjanda. Trygging: Val um ábyrgðartryggingu frá viðurkenndum aðila, bankaábyrgð eða innlagða tryggingu. Leigufjárhæð 340.000 á mánuði.
Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. Leigumiðlari Monika (at) aldirfasteignir.is Tel: 823-2800
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
13 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.020.000 krInnflutningsverð
1.360.000 kr
Leigt út af Monika Hjálmtýsdóttir