




Eyravegur 30
800 Selfoss
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is. Hér er slóð á íbúðina https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/selfossi-657fermetrar-s5-ibu-00036r
Til leigu er einstaklega falleg og vel hönnuð 65,7 fm 2ja herbergja íbúð á 3.hæð í vönduðu lyftuhúsi að Eyravegi 28–30 á Selfossi. Um er að ræða nýja eign þar sem áhersla hefur verið lögð á nútímalegt skipulag, góða birtu og þægindi í daglegu lífi.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús mynda samfellda og rúmgóða heild. Úr stofu er útgengt út á svalir. Í íbúðinni er rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergið er rúmgott og vel búið, með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er vel búin þar sem gardínur og lýsing fylgja, og bílastæði eru næg við húsið til sameiginlegra nota. Geymsla fylgir ekki íbúð.
Myndir eru af sambærilegri íbúð
Staðsetning eignarinnar er afar eftirsóknarverð, miðsvæðis á Selfossi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir, íþróttasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði. Hér er því um að ræða þægilegt og vel staðsett heimili sem sameinar nútímalega hönnun og góð lífsgæði.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 265.000 kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Hægt er að velja um tryggingarfé á lokuðum reikningi, bankaábyrgð frá viðskiptabanka eða ábyrgð frá Leiguskjóli.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Fylgifé
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
265.000 kr
Laus frá
11 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
265.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 795.000 krInnflutningsverð
1.060.000 kr

Leigt út af Ívera ehf.